Láttu að þér kveða
 
Leiðarvísir fyrir foreldra þegar velja á stofnanir, félög og námskeið fyrir börn.
Glærukynning - Powerpoint 

Viðburðardagatal

september 2010
s m þ m f f l
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2

FRÉTTIR

4.6.2010 13:08:23
Blátt áfram tekur þátt í jafningjafræðslunámskeiði Reykjavíkur

4.6.2010 12:41:57
Blátt Áfram hlýtur mannréttindaverðlaun!

3.5.2010 20:45:25
Fallegt bréf

[Næsta] [Síðasta]

Skráning á póstlista Netfang:


september 2010
s m þ m f f l
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2

 Vefsmíði: Tónaflóð


Forsíða > Fræðsla > Brúðuleikhús

Brúðuleikhús

Krakkarnir í Hverfinu


Hallveig Thorlacius og Helga Arnalds gefa brúðunum líf og
fara listilega vel með erfiðann málaflokk

Forvarnir gegn líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi - fyrir grunnskóla.  Brúðuleikhús.

Kostnaður fyrir sýningar er 40.000 kr  hver sýning sem er ætluð upp að 50 börnum í senn eða 2 bekkir í einu.  Einnig bætist við ferðakostnaður ef sýningarnar eru fyrir utan Reykjavík og dagpeningar ef um er að ræða meira en dagsferð.  Þessi kostnaður er bein laun brúðustjórnendanna sem eru faglærðar og hafa margra ára reynslu af svona brúðum.

 

Umsögn um sýninguna Krakkarnir í hverfinu í flutningi Hallveigar og Helgu í Hrafnagilsskóla 2. nóvember 2006.

Leiksýningin var að okkar mati vekjandi og ótrúlegt hvað nemendur sýndu mikil viðbrögð og voru áhugasamir og einlægir í spurningum sínum.

Viðkvæmt efni var sett í þann búning að það særir engan en vekur til umhugsunar og styrkir börn í að geta leitað aðstoðar hjá einhverjum sem þau treysta.

Anna Guðmundsdóttir og Karl Frímannsson Hrafnagilsskóla

Við bjóðum upp á 2 sýningar.  Önnur er um líkamlegt ofbeldi og ætluð krökkum á aldrinum 6-8 ára og hin um kynferðislegt ofbeldi, ætluð krökkum á aldrinum 9-12 ára.

http://styrkur.net/html/radstefna.html  Hér getur þú séð kynningu á sýningu um kynferðisofbeldi - Þessi sýning er ætluð krökkum 9 til 12 ára. 

Krakkarnir í hverfinu er leikþáttur þar sem meters háar brúður eru notaðar til að tala við börn um hluti skipta börn máli. 

"The kids on the block" eða Krakkarnir í hverfinu kemur frá Maryland, bandaríkjunum.  The kids on the block eru stutt fræðslutengd leikrit sem nota leikbrúður til að kenna börnum samfélags mál.  www.tkob.org

Af hverju krakkarnir í hverfinu?

Þegar Blátt áfram fór að leita að efni sem hugsanlega væri hægt að nota í grunnskólum Íslands var okkur bent á The kids on the block.  Það sem sérstaklega vakti áhuga okkar var sú staðreynd að þetta efni hefur nú þegar reynst mjög vel í að fræða börn og unglinga um mál eins og kynferðislegt ofbeldi.

Blátt áfram fékk veglega styrki árið 2004 frá Velferðarsjóð Íslenskra Barna (1 milljón króna)  og Forvarnarnefnd Reykjavíkurborgar (fimm hundruð þúsund) sérstaklega til þess að koma brúðuleikhúsinu á legg.  Án þessa framlags og stuðnings væri brúðuleikhúsið draumur einn.

Blátt áfram vill nýta sér efni og fræðslu sem nú þegar er til í stað þess að leggja tíma eða fjármagn í að búa til eitthvað nýtt.  Leikbrúðurnar eru til, efnið er til og þjálfunin stendur til boða.  Þegar hefur fengist leyfi til að þýða efnið yfir á íslensku.

Efni leikþáttanna sem boðið er upp á eru yfir 40 talsins.  Með leikþætti um ofbeldi og kynferðislegt ofbeldi eru brúður sem tala við og taka við spurningum frá börnum um þennan málaflokk.  Brúður sem eru eins og börnin og tala eins og börnin geta oft náð betur til þeirra en fullorðnir.  Geta því svarað spurningum um hvað er satt og hvað er ekki satt þegar um þessi mál er talað.

Sálfræðingur eða ráðgjafi verða að vera viðstaddir hverja sýningu.  Ef barn kemur fram eftir eða í sýningu og lýsir ofbeldi verður að vera tekið rétt á því.  Blátt áfram hefur samband við félagsþjónustuna í bænum þar sem sýningar fara fram og biður um samstarf og stuðning við sýningarnar.

Annar kostur við þetta efni er að hér gefst fullorðinum sem vinna með börnum tækifæri til að sjá og læra hvernig börn taka á þessum málum, sérstaklega af hverju börn “kjafta ekki frá”.

Vonast Blátt áfram með þessu efni til þess að stuðla að frekari skilningi barna og unglinga á kynferðislegu ofbeldi.  Einning að þessi fræðsla gefi einhverjum börnum leið til að koma fram og biðjast hjálpar.

Kostnaður fyrir sýningar er 40.000 kr  hver sýning sem er ætluð upp að 50 börnum í senn eða 2 bekkir í einu.  Einnig bætist við ferðakostnaður ef sýningarnar eru fyrir utan Reykjavík og dagpeningar ef um er að ræða meira en dagsferð.  Þessi kostnaður er bein laun brúðustjórnendanna sem eru faglærðar og hafa margra ára reynslu af svona brúðum.

Fyrir nánari upplýsingar um sýningar hafið samband við:
svava@blattafram.is

Ef þú vilt kynna þér nánar efni sýninganna þá er hægt að nálgast það hér:

Umsagnir um brúðuleikhúsið:

 

Krakkarnir í Hverfinu hafa heimsótt eftirfarandi:

2007

  • Varmárskóli Mosfellsbæ  http://www.varmarskoli.is/blattafram07.html (myndir)
  • Brúarskóli Reykjavík
  • Norðlingaskóli Reykjavík
  • Engjaskóli Reykjavík
  • Breiðagerðisskóli Reykjavík
  • Öskjuhlíðarskóli Reykjavík
  • Hamraskóli Reykjavík

2006

  • Lækjarskóla í Hafnarfirði
  • Smáraskóla í Kópavogi
  • Austurbæjarskóli í Reykjavík
  • Hlíðarskóli í Reykjavík
  • Breiðholtsskóli í Reykjavík
  • Kirkjubæjarklaustur
  • Vík
  • Nesjaskóli Hornafirði
  • Hafnarskóli á Hornafirði
  • Leikskólinn Krakkakot á Hornafirði
  • Grunnskólinn í Sandgerði
  • Vallaskóli Selfossi
  • Grunnskólinn á Grundarfirði
  • Grunnskólinn á Siglufirði
  • Sunnulæjarskóli á Selfossi
  • Álftaborg í Reykjavík
  • Foldaskóla í Reykjavík
  • Ísakskóla í Reykjavík

 



Til baka





Blátt áfram · Haukanes 23 · 210 Garðabær · Sími 533 2929 · Netfang: blattafram@blattafram.is

Site map  |  DSB Web Directory  |  Vikings Travel Directory  |  Vehicle Galaxy Auto Directory